Ljósið - Skálmöld

Ljósið - Skálmöld

Альбом
Sorgir
Год
2018
Язык
`アイスランド語`
Длительность
313400

以下は曲の歌詞です Ljósið 、アーティスト - Skálmöld 翻訳付き

歌詞 " Ljósið "

原文と翻訳

Ljósið

Skálmöld

Ljósið dansaði, logar skinu

Það létti okkur veturinn, hrakti burtu kala

Ákaft brann i eldstæðinu

Sá ylur veitti svöngum ró

Skall á torfinu vestanvindur

Sem vakti ótal óhreinar hugsanir af dvala

Fingur alla frostið bindur

Er fýkur lif úr östkustó

Stakkur minn er storkinn köldu blóði

Stendur hagl og illska mér í fang

Þungfær liggur þröngur bæjarslóði

Þreytist ég við dimman éljagang

Ljósið andaðist, logar dóu

Við lágum tvö í myrkrinu, heyrðum börnin gráta

Tíðin var of góð á góu

Nú geldur harpa fyrir það

Draugagaddurinn bítur beinin

Hvað bældi niður glóðina?

Það er snúin gáta

Hlusta ég á vesæl veinin

Og verð að koma mér af stað

Niðadimm og náköld brennir móðan

Nálgast hjáleiguna, allt er hljótt

Fimbulnæturfrost mig setur hljódan

Ferja þarf ég eldinn heim í nótt

Í nótt fraus á tjörn

Í nótt dóu börn

Í nótt frusu litlar hendur í hel

Sem höfðu áður leik að legg og skel

Í nótt fraus á tjörn

Brýst ég heim að bæjarskör

Ber með hnefa hurð af hjör

Birtan sýnir liðin lik

Lokk af enni þeirra strýk

Konan fölnuð, börnin blá

Bædi liggja, hún þeim hjá

Kaldan horfi köstinn í

Kveiki ég upp eld á ný?

Kveiki ég upp eld á ný?

Littu út um ljórann, vinur

Og leyfðu mér að kveðja þig

Skálinn allur skekst og hrynur

Þá Skotta vildi gleðja sig

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます