Árás - Skálmöld

Árás - Skálmöld

Год
2013
Язык
`アイスランド語`
Длительность
366400

以下は曲の歌詞です Árás 、アーティスト - Skálmöld 翻訳付き

歌詞 " Árás "

原文と翻訳

Árás

Skálmöld

Kvöld, úr norðri kólna fer

Kemur yfir heiðar:

Vængjasláttur, vætta her

Varúlfar til reiðar

Ég reið yfir landið mitt, reri' út á fjörð

Rólegur sjórinn, ég lofaði Njörð

Í ljósanna skiptum ég leit upp í Skörð

Ljót var sú sýn er mér mætti

Kom yfir brúnina kolsvartur her

Ég kúventi bátnum og hraðaði mér

Vængirnir steinrunnir, vígtannager

Og væl sem nú kyrrðina tætti

Skugga hann varpaði, skelfileg sjón

Skálmöld var risin og mikið varð tjón

Drukknaði þannig mín dýrasta bón

Drepið var allt sem ég unni

Verja þau átti en var til þess seinn

Viti menn, lifandi eftir ei neinn

Ataður svörður sem áður var hreinn

Allt mitt var hrunið að grunni

Ég sá:

Barnið mitt tætt, blóðugt og hrætt

Ég sá:

Barið á húsgripum mínum og ætt

Ég sá:

Saklaust blóð, fljóta um fljóð

Ég sá:

Fjölskyldu slátrað sem var mér svo góð

Ég sá:

Deyja mær, dæturnar tvær

Ég sá:

Dreyrrauðar klærnar sem læstust í þær

Ég sá:

Visna jurt, var einhvers spurt?

Ég sá:

Vágestinn glotta og halda á burt

Gekk um garð

Gríðarskarð

Höggvið hart

Hel mig snart

Vængjuð vá

Vargur sá

Nafn hans nefnt

Nú skal hefnt

Heit er gefið, heit sem verður efnt

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます