Að Vori - Skálmöld

Að Vori - Skálmöld

Год
2014
Язык
`アイスランド語`
Длительность
188650

以下は曲の歌詞です Að Vori 、アーティスト - Skálmöld 翻訳付き

歌詞 " Að Vori "

原文と翻訳

Að Vori

Skálmöld

Þórunn Auðna, þá hún fæddist

Þungt var yfir Ísafold

Eymd sem allt um lá og læddist

Loftið sverti, vötn og mold

Myrkur að vori á Melrakkasléttu

Meybarn var borið í óþökk og nauð

Fátæk og horuð hún fæddist, með réttu

Fyrst voru sporin öll hamingjusnauð

Þakkir fær sá er Þórunni sendi

Þakkir af einingu

Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi

Barnið með meiningu

Þórunn Auðna, þá hún fæddist

Þeyr blés yfir dal og tún

Varla neina vá hún hræddist

Varin undir galdrarún

Þakkir fær sá er Þórunni sendi

Þakkir af einingu góðar

Ég veit ekki hvar hún bernskunni brenndi

Barnið með meiningu þjóðar

Fyrst varð hún móðurlaus, föðurlaus siðan

Fjöllin og gróðurinn tóku að sér

Ljóshærða flóðið með lokkinn svo friðan

Læst hennar blóðbönd í örlagakver

Ég veit ekki hvar hún æskunni eyddi

Eða hvar hófst hennar ferð

Né hvað það var sem götuna greiddi

Gaf henni bogann og sverð

Þórunn Auðna, þá hún fæddist

Þa blés von um Íslandsströnd

Neistinn fyrir norðan glæddist

Nytsamleg sú hjálparhönd

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます