Niðavellir - Skálmöld

Niðavellir - Skálmöld

Альбом
Vögguvísur Yggdrasils
Год
2016
Язык
`アイスランド語`
Длительность
279890

以下は曲の歌詞です Niðavellir 、アーティスト - Skálmöld 翻訳付き

歌詞 " Niðavellir "

原文と翻訳

Niðavellir

Skálmöld

Niðavellir, náhvítur máninn skín

Dvergahellir, dulúð þér villir sýn

Sindradætur, synir og börnin öll

Vetrarnætur, verma þau klettafjöll

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa

Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa

Galdrastafir, grafnir í stóran stein

Dvergagrafir, dysjar og gömul bein

Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal

Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal

Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa

Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa

Trónir á mergi tinnugler

Tindar úr bergi háir

Sindri og Hergill halla sér

Hér sofa dvergar gráir

Heyr, mín kæra hefðarfrú

Hér er gott að sofa

Á sig taka náðir nú

Niðahjón og börnin þrjú

Þegar heyrist þrumugnýr

Þór við skulum lofa

Okkur geymir hellir hlýr

Hér er gott að sofa

Náinn syngur næturljóð

Núna sefur dvergaþjóð

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます