Ástarljóð - Kælan Mikla

Ástarljóð - Kælan Mikla

Альбом
Mánadans
Год
2014
Язык
`アイスランド語`
Длительность
208830

以下は曲の歌詞です Ástarljóð 、アーティスト - Kælan Mikla 翻訳付き

歌詞 " Ástarljóð "

原文と翻訳

Ástarljóð

Kælan Mikla

Hvernig gátu hunangsgylltar hlíðarnar

Og bjargvættar bláminn í björgunum

Skyndilega skotist á brott

Skelfingar skugginn er kuldalegur

Vorið var vonbrigði

Og sumarið þrældómur vetrarins

Ég er volandi vændiskona

Veggja sem hindra mína

Gleði og glæstu framtíðar drauma

Ég man þegar ég speglaðist

Í gullslegnu vatni

Og sá sjálfa mig brosa

Svanurinn sem kenndi mér

Forðum að fljúga

Er nú farinn, floginn á brott

Og ég sit hérna eftir

Alveg vængjalaus

Og velti því fyrir mér

Hvort ég fái nokkurn tíma aftur að fljúga

Ég festi mig við arfa í garðinum

Hjartað mitt er að springa

Skelfingar skjálfti í líkama mínum

Ríkir og reiðin er óflýjandi

Líkami minn er ólgusjór

Og ég vona að þið drukknið öll með mér

Hjartsláttur minn er óreglu öldugangur

Og lungun mín fyllast af vatni

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Aftur

Svo ég fái kannski að hitta þig aftur

Aftur

Aftur

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます