Nón - Sólstafir

Nón - Sólstafir

Альбом
Ótta
Год
2014
Язык
`アイスランド語`
Длительность
467460

以下は曲の歌詞です Nón 、アーティスト - Sólstafir 翻訳付き

歌詞 " Nón "

原文と翻訳

Nón

Sólstafir

Sólbrot yfir nátthaga

Læðist sifji nætur, stelur minni sálarró

Þögnin þung sem blóð

Brestur tónn eitt sinn fagur

Kyrrð í vetrarríki

Myrkrið mýkir glætan gul

Gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný

Nóttin þung sem blý

Fönnin kæfir sumarilm

Vetur tekur yfir

Vonin kom með vorinu

En lifði ekki lengi hér á Góumánuðum

Dó í ánauðum

Stoltið drap þá veiku von

Kyrrð í vetrarríki

Rökkvar yfir lífi okkar

Úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin

Hjartans vorboðinn

Nú grafin er í fönn

Vetur tekur yfir

Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi

Dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum

Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig?

Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn?

Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum

Né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið

Drápu niður fæti illar draumfarir

Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます