以下は曲の歌詞です Góða Tungl 、アーティスト - Samaris, Stubborn Heart 翻訳付き
原文と翻訳
Samaris, Stubborn Heart
Góða tungl um loft þú líður
Ljúft við skýja silfur skaut
Eins og viljinn alvalds býður
Eftir þinni vissu braut
Öllum þreyttum, ljós þitt ljáðu
Læðstu um glugga sérhvern inn
Lát í húmi, hjörtun þjáðu
Huggast blítt við geisla þinn
Góða tungl um götur skírðar
Gengur þú og lýsir vel
Þar er setti sér til dýrðar
Sjálfur Guð, þitt bjarta hvel
Lít til vorra lágu ranna
Lát þitt friðarandlit sjást
Og sem vinhýr vörður manna
Vitna þú um drottins ást
Góða tungl í geislamóðu
Glansar þú í stjarnasæ
Og með svifi hvelfist hljóðu
Hátíðlega' í næturblæ
Þú oss færir, frá þeim hæsta
Föður mildan náðar koss
Og til morguns, gullinglæsta
Góða tungl þú leiðir oss
様々な言語の楽曲
あらゆる言語への高品質な翻訳
必要なテキストを数秒で見つけます