Stofnar falla - Samaris

Stofnar falla - Samaris

  • Альбом: Samaris

  • リリース年: 2006
  • 言語: アイスランド語
  • 間隔: 4:49

以下は曲の歌詞です Stofnar falla 、アーティスト - Samaris 翻訳付き

歌詞 " Stofnar falla "

原文と翻訳

Stofnar falla

Samaris

Stofnar falla

Stráin sölna.

Stofnar falla

Stormur dauðans næðir alla

Stofnar falla

Stráin sölna.

Stofnar falla

Stormur dauðans næðir alla

Ljóselskandi, langanþrungið

Lífið fyllir öll þau skörð

Sækir fram í sigurvissu

Svo er strítt um alla jörð

Stríðsmenn falla.

Hetjur hníga

Hjaðningum er stefnt til víga

Aldrei verður sæst á sakir

Sækja og verjast herjum tveim

Sólskinsbörn og synir skuggans

Svo er strítt um allan heim

Tefld er drápskák tveggja herja

Tvíefld sókn og reynt að verja

Öllu tjaldað: erfðaheimsku

Afturhaldi, þræladygð

Móti þroskans sókn til sigurs

Svo er strítt um alla byggð

Fallinn er hann Fjögramaki

Fyrr sem lyfti Grettistaki

Þó að hetja hnigi í valinn

Hefjum merkið fram skal stefnt

Syrgjum ei, en söfnum liði

Svo skal góðra drengja hefnt

Örn Arnarson (Magnús Stefánsson)

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます