Trúnó - Moses Hightower

Trúnó - Moses Hightower

  • リリース年: 2017
  • 言語: アイスランド語
  • 間隔: 4:06

以下は曲の歌詞です Trúnó 、アーティスト - Moses Hightower 翻訳付き

歌詞 " Trúnó "

原文と翻訳

Trúnó

Moses Hightower

Þau sitja eftir

Með auð sætispláss til beggja handa

Dreypandi sitt á hvað

Á drykkjunum sem eftir standa

«Alveg sjálfsagt

Ekki að minnast á

Láttu vaða

Leystu skjóðu frá

Ég segi engum!»

Svo kryfjast hjartans mál

Og einhvers andadýr er panda

Trúnó, trúnó, kinn við kinn:

Þú og ég og einhver vinur þinn

Trúnó treina, trúnó viðhalda

Nóttin naumast orðin miðaldra

Og við svo krumpuð bæði og breytt

Því það er langt um liðið

Og hundruð hundaára

Hafa á okkar daga drifið

«Alveg sjálfsagt

Ekki að minnast á

Láttu vaða

Leystu skjóðu frá

Ég segi engum!»

Trúnó, trúnó, kinn við kinn:

Þú og ég og einhver vinur þinn

Trúnó treina, trúnó viðhalda

Nóttin naumast orðin miðaldra

Hann ber af sér blak frá makanum —

Þau takast á, hvort skuli saka um

Þakið sem hrakar í rakanum

«En ég makaði á það fram og til baka, ha?

Vertu ekki hengjandi smið fyrir bakara.»

Trúnó, trúnó, (kinn við) kinn við kinn:

Þú og ég og einhver vinur þinn

Trúnó treina, trúnó viðhalda

Nóttin naumast orðin miðaldra

サイト上の新しいテキストと翻訳:

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます