以下は曲の歌詞です Með Svipur á Lofti 、アーティスト - Misþyrming 翻訳付き
原文と翻訳
Misþyrming
Stoðkerfi alls lífs er örkumla
Því lífæðin fellur hver af annarri
Skrýmslið hrifsar þær allar að sér
Og sýgur ötult að sér
Allt sem eitt sinn blómstraði
Þar stendur það stælt á veikburða grundu
Og étur undan sér jarðveginn
Hún reynir af mesta megni
Að berjast á móti
En ríkjandi Guð, með svipur á lofti
Lætur eigi undan
Hann hrifsar að sér loftið
Sem æ verður af skornari skammti
En þrátt fyrir að rýmið þrengi og þrengi að
Ríkir Hann enn með svipur á lofti
様々な言語の楽曲
あらゆる言語への高品質な翻訳
必要なテキストを数秒で見つけます