Bréfið -

Bréfið -

  • リリース年: 2003
  • 言語: アイスランド語
  • 間隔: 5:40

以下は曲の歌詞です Bréfið 、アーティスト - 翻訳付き

歌詞 " Bréfið "

原文と翻訳

Bréfið

Ég skrifa bréf þótt skaki vindar hreysi

Og skrifta fyrir þér

Ég tíunda mitt eigið auðnuleysi

Og allt sem að miður fer

Því hafin yfir hversdagsleikann gráa

Ert þú hjartans vina mín

Ég ljósið slekk og langt í fjarskann bláa

Leitar hugurinn til þín

Svo ber ég eld að bréfkorninu mínu

Þá batnar vistin hér

Því fölur loginn fyllist brosi þínu

Sem að fyrirgefur mér

Og þannig brúar þessi litla skíma

Þagnarinnar hyl

Þú huldumey sem handan rúms og tíma

Hefðir getað verið til

Svo ber ég eld að bréfkorninu mínu

Þá batnar vistin hér

Því fölur loginn fyllist brosi þínu

Sem að fyrirgefur mér

Og þannig brúar þessi litla skíma

Þagnarinnar hyl

Þú huldumey sem handan rúms og tíma

Hefðir getað verið til

サイト上の新しいテキストと翻訳:

200万曲以上の歌詞

様々な言語の楽曲

翻訳

あらゆる言語への高品質な翻訳

クイック検索

必要なテキストを数秒で見つけます