
以下は曲の歌詞です Rómeó Og Júlía 、アーティスト - 翻訳付き
原文と翻訳
Uppi í risinu sérðu lítið ljós
Heit hjörtu, fölnuð rós
Matarleifar, bogin skeið
Undan oddinum samviskan sveið
Þau trúðu á draumamyrkrið svalt
Draumarnir tilbáðu þau
Fingurnir gældu við stálið kalt
Lífsvökvann dælan saug
Draumarnir langir runnu í eitt
Dofin þau fylgdu með
Sprautan varð lífið, með henni gátu breytt
Því sem átti eftir að ske
Uppi í risinu lágu og ófu sinn vef
Óttann þræddu upp á þráð
Ekkert gat skeð því það var ekkert ef
Ef vel var að gáð
Hittust á laun, léku í friði og ró
Í skugganum sat Talía
Hvítir hestar drógu vagninn með Rómeó
Við hlið hans sat Júlía
Trúðu á draumamyrkrið svalt
Draumarnir tilbáðu þau
Rómeó - Júlía
Rómeó - Júlía
Þegar kaldir vindar haustsins blása
Naprir um göturnar
Sérðu Júlíu standa, bjóða sig hása
Í von um líf í æðarnar
Því Rómeó villtist inn á annað svið
Hans hlutverk gekk ekki þar
Of stór skammtur stytti þá bið
Inni á klósetti á óþekktum bar
Hittust á laun, léku í friði…
Angela Maria • 1956
Ece Seçkin • 2024
Eloy • 1992
Jam in the Van, Trash Panda • 2023
Reinaldo • 2002
Çeşitli Sanatçılar, Alp Arslan, Faruk Salgar • 2012
I$$A • 2020
様々な言語の楽曲
あらゆる言語への高品質な翻訳
必要なテキストを数秒で見つけます